5,0 · 2 umsagnir

Krillolía er unnin úr smáum krabbadýrum sem lifa í köldum sjó Suðurskautslandsins. Hún inniheldur omega-3 fitusýrurnar EPA og DHA, sem gegna mikilvægu hlutverki í líkamanum.
Í krillolíu eru omega-3 fitusýrurnar að hluta bundnar fosfólípíðum. Fosfólípíð eru náttúrulegir byggingarhlutar frumuhimna og gegna mikilvægu hlutverki í starfsemi frumna.
KRILL frá AgeLab inniheldur einnig kólín, sem stuðlar að eðlilegum fituefnaskiptum og viðhaldi eðlilegrar lifrarstarfsemi, ásamt astaxantíni, náttúrulegu litarefni sem gefur krillolíunni rauðleitan blæ.
| Innihaldsefni | Hlutverk | Magn |
|---|---|---|
| Krillolía (Superba Boost®) | 1.180 mg | |
| Fosfólípíð | 660 mg | |
| Omega-3 alls | 318 mg | |
| Þar af EPA | 178 mg | |
| Þar af DHA | 82 mg | |
| Kólín | 83 mg | |
| Astaxantín | 100 µg |
KRILL inniheldur Superba Boost® krillolíu frá Suðurskautslandinu. Olían er unnin úr krilli sem er veitt samkvæmt kröfum MSC-vottunar um sjálfbærar fiskveiðar.
Við leggjum áherslu á skýrar upplýsingar um uppruna, innihald og gæði þeirra vara sem við veljum fyrir Radísu.
Ofnæmi: KRILL inniheldur krabbadýr og hentar ekki þeim sem hafa ofnæmi fyrir krabbadýrum. Ekki fara yfir ráðlagðan dagskammt. Ekki ætlað börnum yngri en 18 ára. Geymist þar sem börn ná ekki til. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreytts mataræðis og geta hvorki meðhöndlað né komið í veg fyrir sjúkdóma. Ráðfærðu þig við heilbrigðisstarfsfólk fyrir notkun ef þú ert með undirliggjandi sjúkdóm, ert barnshafandi, með barn á brjósti eða tekur lyf.
Bæði krillolía og fiskolía innihalda omega-3 fitusýrurnar EPA og DHA. Helsti munurinn felst í því hvernig fitusýrurnar eru bundnar. Í krillolíu er hluti þeirra bundinn fosfólípíðum en í hefðbundinni fiskolíu eru þær að mestu í formi þríglýseríða. Báðar olíurnar geta verið góðar uppsprettur omega-3 fitusýra. Mikilvægast er að skoða magn EPA og DHA í ráðlögðum dagskammti.
Pantanir eru sendar innan sólarhrings og afhentar á 1–3 virkum dögum um allt land.
Veldu 2 eða 3 stykki af sömu vöru og afslátturinn reiknast sjálfkrafa. Á völdum vörum gildir 2 fyrir 1.
AgeLab er norskt sérfræðifyrirtæki í heilbrigðri öldrun með ráðgjafahóp vísindafólks. Radísa er söluaðili AgeLab á Íslandi.